Bótaþættir

Umferðarslys

Uppgjör vegna umferðarslysa fer fram samkvæmt skaðabótalögum nr. 50/1993. Þetta þýðir að sá sem slasast á rétt á bótum vegna varanlegrar örorku samkvæmt reiknireglum sem miða við að tjónþoli fái bætt framtíðartekjutap til ellilífeyrisaldurs. Tjónþoli á jafnframt rétt á bótum vegna læknisfræðilegrar örorku, tímabundins atvinnutjóns og þjáninga, auk bóta vegna útlagðs kostnaðar.

Vinnuslys

Atvinnurekendur eiga að tryggja starfsmenn sína vegna vinnuslysa og eiga þeir rétt á bótum úr slysatryggingu launþega hjá vátryggingafélögum og hjá Sjúkratryggingum Íslands. Ef vinnuslys verður rakið til atvika sem vinnuveitandinn ber ábyrgð á, t.d. mistaka annarra starfsmanna vinnuveitandans, á launþeginn einnig rétt á bótum samkvæmt skaðabótalögum. Mikilvægt er að vinnuslys séu tilkynnt til vátryggingafélags eins fljótt og hægt.

Frítímaslys

Ef sá sem verður fyrir líkamstjóni er með gilda fjölskyldu- eða heimilistryggingu sem tekur til slysa á hann rétt til bóta úr henni nema áhættan sé undanskilin skv. skilmálum tryggingarinnar. Yfirleitt er um svokallaðar summutryggingar er að ræða sem þýðir að bótafjárhæðir eru staðlaðar og taka til bóta vegna læknisfræðilegrar örorku og einnig dagpeninga.

Líkamsárásir

Sá sem verður fyrir líkamsárás á rétt á að fá tjón sitt bætt úr hendi árásarmannsins. Einnig á hann rétt til bóta úr ríkissjóði. Bætur taka m.a. til varanlegrar örorku, varanlegs miska, þjáninga, miska og útlagðs kostnaðar.